Home Fréttir Í fréttum Met slegið í fjölda kaup­samninga vegna uppkaupa Þór­kötlu

Met slegið í fjölda kaup­samninga vegna uppkaupa Þór­kötlu

27
0
Kaup ríkisins á íbúðum í Grindavík setur mark sitt á fasteignamarkaðinn. VÍSIR/VILHELM

Met var slegið í fjölda kaupsamninga í maí en það má rekja til uppkaupa Þórkötlu á íbúðum í Grindavík. Kaupsamningar voru samtals 1.760 en rúmlega 1.300 ef kaupsamningar í Grindavík eru ekki taldir með.

<>

Þetta er meðal þess sem kemur fram í mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Þar greinir einnig frá því að vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4 prósent á milli mánaða í júní. Íbúðaverð hafi hækkað um 6,4 prósent frá janúar, sem jafngildi um 16 prósent hækkun á ársgrundvelli. Íbúðaverð hafi nú hækkað um 3,1 prósent umfram vísitölu neysluverðs síðustu 12 mánuði.

„Hátt hlutfall eigna selst á yfirverði sem gæti bent til áframhaldandi hækkana á verði. Á höfuðborgarsvæðinu seldust um 20 prósent eigna yfir ásettu verði síðustu mánuði en þegar fasteignamarkaður er í jafnvægi má gera ráð fyrir að hlutfallið sé um 10 prósent,“ segir í samantekt.

Enn er ójafnvægi á leigumarkaði en vísitala leiguverðs hækkaði um 2,5 prósent í júní og hefur hækkað um 7,4 prósent á síðustu þremur mánuðum. Framboð á hótelherbergjum hafi aukist og nýtingin versnað, sem gæti dregið úr skammtímaleigu og létt á þrýstingi á leigumarkaðnum á komandi misserum.

„Lánamarkaðurinn varð fyrir áhrifum af uppkaupum Þórkötlu á íbúðarhúsnæði í Grindavík. Hrein ný íbúðalán námu einungis 2 milljörðum króna þrátt fyrir mikla veltu á íbúðamarkaði. Í tölum Seðlabankans um bankakerfið má sjá að útlán til fyrirtækja í þjónustu tengdri fasteignafélögum jukust um 28 milljarða í maí, mest í tengslum við sölu Grindvíkinga á fasteignum sínum til fasteignafélagsins Þórkötlu,“ segir í samantektinni.

Þá segir að hægt hafi á íbúðauppbyggingu en fullbúnum íbúðum hafi fjölgað um 3.096 síðustu tólf mánuði, á meðan þeim hafði fjölgað um 3.446 um miðjan febrúar. Aðeins um 5 prósent íbúða sem komið hafa á markað á höfuðborgarsvæðinu á þessu ári eru sérbýli en hlutfallið er 38 prósent annars staðar.

Í báðum tilfellum er um að ræða sögulega lágt hlutfall.

Hér má finna skýrsluna í heild.

Heimild: Visir.is