Home Fréttir Í fréttum Uppbygging heldur áfram í Tjarnabyggð í Árborg

Uppbygging heldur áfram í Tjarnabyggð í Árborg

115
0
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri og Ólafur Haraldson eigandi Ólafshaga handsala samkomulagið. Ljósmynd/Árborg

Sveitarfélagið Árborg og Ólafshagi ehf. hafa gert samkomulag um uppbyggingu fjórða áfanga í Tjarnabyggð sem er svokölluð búgarðabyggð í gamla Sandvíkurhreppi.

<>

Það voru Bragi Bjarnason, bæjarstjóri og Ólafur Haraldson eigandi Ólafshaga sem skrifuðu undir samkomulagið sem byggir á eldri samningi frá árinu 2005 um uppbyggingu Tjarnarbyggðar.

Uppbygging í Tjarnabyggð hófst árið 2006 en í kjölfar efnahagsástandsins árin þar á eftir hægðist á uppbyggingu svæðisins. Undanfarin ár hefurhins vegar risið fjöldi húsa á lóðunum og íbúum fjölgað samhliða.

Samkomulagið felur í sér uppbyggingu fjórða áfanga svæðisins sem inniheldur um 66 byggingalóðir í ellefu klösum þar sem sex byggingarlóðir eru í hverjum klasa. Í samræmi við samkomulagið verður uppbyggingin í áföngum þar sem að lágmarki verði byggð fjögur íbúðarhús í hverjum klasa áður en byrjað er á næsta klasa.

Áætlað er að framkvæmdir við gatnagerð hefjist fljótlega og í kjölfarið fyrsta klasanum við Norðurslóð. Landeigandi leggur auk þess til svæði undir grenndarstöð og leiksvæði/opið svæði sem nýtist íbúum hverfisins.

Heimild: Sunnlenska.is