Byrjað er á fyrsta áfanganum, sem er seiðaeldistöð, þar sem áframeldisstöð Thor Landeldis mun rísa. Kælasmiðjan Frost leggur til varmadælulausn.
yrsta skóflustungan að seiðaeldisstöð Thor Landeldis, sem hefur áform um uppbyggingu á 20 þúsund tonna laxeldi í Þorlákshöfn, var tekin síðastliðinn föstudag.
Byrjað er á fyrsta áfanganum, sem er seiðaeldistöð við Laxabraut 35 vestan við Þorlákshöfn. Þar mun áframeldisstöð félagsins mun rísa.
Að því er segir í fréttatilkynningu frá Kælismiðjunni Frosti hefur fyrirtækið gengið frá samningi um sölu á öflugri varmadælulausn fyrir fiskeldi til Thor Landeldis.
Varmadælur í fiskeldi og sjúkrahús
„Lausnin byggir á tækni frá PTG sem Frost hefur frábæra reynslu af í mörgum af okkar sérsniðnu lausnum,“ segir í tilkynningunni þar sem einnig kemur fram að salan á varmadælulausninni hafi verið handsöluð af Hákoni Hallgrímssyni, sölustjóra Frosts og Jóntani Þórðarsyni, einum af forsvarsmönnum Thor Landeldis.
„Perfect Temperature Group (PTG) er vel þekkt fyrir framúrskarandi hönnun og framleiðslu á varmadælum fyrir bæði hitun og kælingu til fiskeldis.
Varmadælurnar frá PTG eru víða í notkun við kælingu á seiðaeldi, hrognum og við slátrun og vinnslu á laxi, silungi, þorski og lúðu.
Þar að auki þróar PTG SuperHeat varmadælur sem nota CO2 sem kælimiðil. Slíkar varmadælur eru afbragðs kostur fyrir matvælaiðnað, vinnslustöðvar, fiskeldi, sjúkrahús og fleira,“ segir í tilkynningu Frost.
Heimild: Fiskifrettir.vb.is