Isavia óskar eftir samstarfsaðilum til að þróa og hanna mannvirki með sem hagkvæmasta líftímakostnað fyrir verkkaupa þar sem ráðgjafar horfa til byggingarhæfni (e.constrsuctability) og fasaskiptingar í hönnun og framkvæmd þannig að hægt verði að taka hluta mannvirkis í rekstur á meðan mannvirkið er enn á framkvæmdastigi.
Hlutverk ráðgjafa felst í hugmyndavinnu, hönnun, ráðgjöf og skýrslugerð fyrir mannvirki og kerfi á skipulagssvæði Keflavíkurflugvallar.
Þeir ráðgjafar sem uppfylla kröfur hæfismats útboðsgagna verða aðilar að rammasamningi Isavia fyrir hönnun og ráðgjöf vegna verklegra framkvæmda á Keflavíkurflugvelli.
– Kennsla á vefsíðu fyrir gæðamat verður 10.07.2024 og kynningarfundur verður 13.08.2024
Útboðsgögn afhent: | 04.07.2024 kl. 12:00 |
Skilafrestur | 25.09.2024 kl. 10:00 |
Opnun tilboða: | 25.09.2024 kl. 10:00 |
Sjá nánar á utbod.isavia.is