Fyrirhugað er að bjóða út Fjölnota íþróttahúss KR í Vesturbæ á íþróttasvæði KR í haust.
Stærð hússins verður alls um 6.700 m² en þar af er íþróttasalurinn um 4.400 m² á einni hæð. Í húsinu verður hægt að æfa knattspyrnu innandyra á gervigrasvelli og miðað við að hægt sé að keppa mótsleiki í 8 manna bolta. Í hliðarbyggingu húss er gert ráð fyrir skrifstofurýmum, taekwondosal, fundarsölum og öðrum rýmum sem tengjast starfsemi hússins Í húsinu verður hægt að iðka ýmsar aðrar íþróttir, bæði æfingar og keppni.
Helstu verkþættir eru:
- Arkitektahönnun húss
- Verkfræðihönnun húss
- Jarðvinna
- Uppsteypa og/eða stálburðarvirki
- Frágangur utanhúss
- Frágangur innanhúss, þ.m.t gervigras og uppsetning á föstum búnaði
- Uppsetning og fullnaðarfrágangur allra lagna- og rafkerfa
- Frágangur lóðar við íþróttahús
Stefnt er að útboðið verði auglýst í ágúst 2024.