Banaslys varð á byggingarsvæði á Akranesi þann tólfta júní síðastliðinn. Karlmaður á sextugsaldri var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 23. júní síðastliðinn.
Vinnumaður á byggingarsvæði féll og hlaut banvæna áverka af. Lögreglan á Vesturlandi staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.
Málið er til meðferðar hjá lögreglunni á Vesturlandi sem getur engar frekari upplýsingar veitt að svo stöddu.
Heimild: Visir.is