Home Fréttir Í fréttum 08.07.2024 Blikastaðir, Mosfellsbær – Korputún, Gatnagerð og lagnir, 1. áfangi

08.07.2024 Blikastaðir, Mosfellsbær – Korputún, Gatnagerð og lagnir, 1. áfangi

288
0

Verkís hf., fyrir hönd Mosfellsbæjar, Reita – Þróunar ehf., Veitna ohf., Ljósleiðarans ehf. og Mílu hf. hér eftir nefnd verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „Blikastaðir, Mosfellsbæ – Korputún, Gatnagerð og lagnir, 1. áfangi“.

<>

Um er að ræða gatna- og stígagerð, lagnavinnu fráveitu og vatnsveitu ásamt ofanvatnsrásum og útrásum vegna uppbyggingar í þessu nýja atvinnuhverfi. Verkið felst enn fremur í að leggja dreifikerfi fyrir Hitaveitu Mosfellsbæjar, Veitur, Mílu og Ljósleiðarann.

Helstu magntölur eru:

Uppgröftur v/gatna og ofanvatnsrása 30000 m3
Fylling í götur 8600 m3
Styrktarlag 6000 m3
Burðarlag 550 m3
Yfirfallsbrunnur í fortjörn 1 stk.
Steypt inntaksmannvirki 1 HT
Gröftur fyrir veitulögnum 5000 m3
Fráveitulagnir 1350 m
Vatnslagnir 370 m
Hitaveitulagnir 240 m
Ídráttarrör 340 m
Fjarskiptalagnir 800 m

 

Um er að ræða opið útboð.

Fyrirspurnartíma lýkur 29. júní 2024
Svarfrestur rennur út     2. júlí 2024
Skilafrestur tilboða 8. júlí 2024 kl. 10:00
Opnunartími tilboða       8. júlí 2024 kl. 11:00
Opnunarstaður tilboða   Verkís hf., Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Verklok  31. maí 2025

Sjá frekar.