Home Fréttir Í fréttum Íþróttahúsið Hópið rifið – „Mikil eftirsjá“

Íþróttahúsið Hópið rifið – „Mikil eftirsjá“

62
0
Hópið í Grindavík. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bæj­ar­stjórn Grinda­vík­ur­bæj­ar hef­ur heim­ilað sviðsstjóra skipu­lags- og um­hverf­is­sviðs að hefja und­ir­bún­ings­vinnu við niðurrif fjöl­nota íþrótta­húss­ins Hóps­ins.

<>

Þetta kem­ur fram í fund­ar­gerð.

Íþrótta­húsið, sem var byggt árið 2008, fór illa út úr jarðhrær­ing­un­um í Grinda­vík og myndaðist stór sprunga und­ir gervi­grasvelli þess.

Ekk­ert annað í stöðunni
„Það var ljóst fyr­ir ein­hverju síðan að það er altjón á hús­inu. Húsið ligg­ur und­ir þess­ari Hóps-sprungu og þetta lá al­gjör­lega ljóst fyr­ir,” seg­ir Ásrún Helga Krist­ins­dótt­ir, for­seti bæj­ar­stjórn­ar Grinda­vík­ur, spurð út í aðdrag­anda ákvörðun­ar­inn­ar.

Hún seg­ir ekk­ert annað í stöðunni en að rífa húsið, meðal ann­ars til að koma í veg fyr­ir að laus­ar stál­plöt­ur og fleira fjúki þaðan næsta vet­ur.

Grinda­vík­ur­bær fékk greidd­ar tjóna­bæt­ur fyr­ir húsið frá Nátt­úru­ham­fara­trygg­ing­um Íslands. Spurð kveðst Ásrún Helga ekki hafa upp­lýs­ing­ar um kostnaðinn við niðurrifið.

Ásrún Helga Krist­ins­dótt­ir, for­seti bæj­ar­stjórn­ar Grinda­vík­ur. Ljós­mynd/​Aðsend

Hefjast handa á næst­unni
Hún býst við því að haf­ist verði handa við niðurrifið á næstu vik­um. Ein­hverj­ir aðilar hafa sýnt áhuga á að ann­ast verk­efnið. Einnig kom til umræðu á bæj­ar­stjórn­ar­fund­in­um að end­ur­nýta eitt­hvað af efni húss­ins.

„Þetta hús var svo frá­bært fyr­ir okk­ur. Þarna fengu börn að leika sér og þetta var fé­lags­miðstöð barn­anna. Það er mik­il eft­ir­sjá af þessu húsi,” bæt­ir hún við en þar fóru meðal ann­ars fram leik­ir og æf­ing­ar í yngri flokk­um í knatt­spyrnu.

Grunn­skóli lík­lega rif­inn líka
Að sögn Ásrún­ar Helgu er von á fleiri fregn­um af niðurrifi á næst­unni, enda hef­ur orðið altjón á mörg­um hús­um í bæn­um.

Til að mynda verður það skoðað mjög vel hvort ný­bygg­ing Hóps­skóla, sem hýsti deild fyr­ir yngri grunn­skóla­börn, verður rif­in en hún var tek­in í notk­un árið 2009. Sú bygg­ing er staðsett á sömu sprungu og Hópið.

Heimild: Mbl.is