Vegagerðin býður hér með út eftirlit með útboðsverkinu „Jökuldalsvegur (923), Arnórsstaðir – Langagerði“
Verkið felst í gerð Jökuldalsvegar á um 4,6km kafla frá Arnórsstöðum að Langagerði.
Verklok eru áætluð í júlí 2025.
Útboðsgögnin eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með fimmtudeginum 13. júní 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 föstudaginn 21. júní 2024.
Ekki verða haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og verðtilboð.