Home Fréttir Í fréttum 07.06.2016 Hringvegur (1), Hveragerði – Biskupstungnabraut, hönnun

07.06.2016 Hringvegur (1), Hveragerði – Biskupstungnabraut, hönnun

168
0

Vegagerðin óskar eftir tilboði í for- og verkhönnun fyrir breikkun Hringvegar (1), frá  Kambarótum að vegamótum Hringvegar og Biskupstungnabrautar, um 12 km.  Á vegkaflanum skal hanna átta steyptar brýr og undirgöng, fimm bárustálsundirgöng, þar af ein ætluð til aksturs. Að lokum skal hanna tvenn tvöföld hringtorg, tvenn hliðfærð T-vegamót og hliðarvegi, göngu- og hjólreiðastíga, samtals um 9 km.

<>

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Forhönnun skal lokið fyrir 21. nóvember 2016.

Verkhönnun og skilamati skal lokið fyrir 9. febrúar 2018.

Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með mánudeginum 18. apríl 2016. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. júní 2016, og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag og lesið upp hverjir hafa skilað inn tilboðum.

Síðari opnunarfundur verður þriðjudaginn 14. júní 2016 kl. 14:15 þar sem lesin verða upp nöfn hæfra bjóðenda úr hæfnisvali og verðtilboð opnuð.

Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.