Frá fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar þann 27. maí 2024
Grunnskólinn á Ísafirði – viðhald skólahúsnæðis – 2022050025
Lagt fram minnisblað Axels R. Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, dags. 17. maí 2024, vegna verksins „Endurnýjun glugga og á gangi Grunnskólans á Ísafirði,“ þar sem lagt er til við bæjarráð að veita sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs umboð til að ganga til samninga við Gömlu Spýtuna vegna verksins.
Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði sviðsstjóra, að gengið verði til samninga við Gömlu Spýtuna vegna verksins „Endurnýjun glugga og á gangi Grunnskólans á Ísafirði.“
Fylgiskjöl:
- Gluggar teikingar.pdf
- Útboðslýsing G.Í. Gluggaskipti.pdf
- Kostnaðaráætlun G.Í. 23.6.2022.pdf
- Minnisblað – Viðhald Grunnskólans á Ísafirði
Heimild: Isafjordur.is