Rangárþing ytra óskar eftir tilboðum í verkið „Grunnskólinn á Hellu, 2. áfangi – Suðurbygging: rafkerfi“.
Rangárþing ytra er að byggja 2700 m2 viðbyggingu við grunnskólann á Hellu sem hýsir verknámsstofur, framleiðslueldhús, hátíðarsal, bókasafn og tónlistaskóla ásamt stjórnunarálmu fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla.
Verkið snýst um raflagnir, lágspennu og smáspennu, lagnaleiðir, kapalútdrátt og tengingar ásamt uppsetningu á búnaði.
Gögnin er hægt er að nálgast með því að senda tölvupóst á netfangið tomas@ry.is og óska eftir útboðsgögnum eða sækja þau með skráningu netfangs í gegnum hnappinn efst á síðunni eða með því að smella á tenglana hér fyrir neðan:
Hér má nálgast útboðsgögnin:
Tilboð skulu hafa borist á skrifstofu Rangárþings Ytra, eigi síðar en 13. júní 2024 kl. 14:00 eða í tölvupósti á netfangið tomas@ry.is og verður niðurstaða kynnt með tölvupósti seinnipart þess dags sem tilboðum er skilað inn
Helstu magntölur eru:
Strengstigar
Strengir |
Lm
LM |
532
14540 |
Lampar | stk | 457 |
Heimild: Ry.is