Home Fréttir Í fréttum 21.06.2024 Arnarborg 2024. Endurgerð lóðar – 1. áfangi

21.06.2024 Arnarborg 2024. Endurgerð lóðar – 1. áfangi

72
0

Lauslegt yfirlit yfir verkið

<>

Verkið snýr að endurgerð á lóð leikskólans Borg/Arnarborga við Maríubakka 1, 109 Reykjavík. Um er að ræða endurgerð á vesturhluta leikskólalóðar en það svæði er u.þ.b 2070 m² að stærð.

Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Framkvæmdatími – verklok

Framkvæmdum skal vera að fullu lokið eigi síðar en 1. nóvember 2024. Verkinu telst ekki lokið af hálfu verktaka fyrr en hann hefur staðið að fullu við skuldbindingar sínar samkvæmt útboðsgögnum. Þá skal aðstaða verktaka hafa verið fjarlægð og vinnusvæðið hreinsað að fullu. Komi til vetraraðstæðna verður verkið sett í biðstöðu.

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 11:00 þann 29. maí 2024. 

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 21. júní 2024.