Mikil þörf er á byggingu nýs hjúkrunarheimilis í Vík í Mýrdal og því hefur sveitarstjóra verið falið að vinna að málinu með heilbrigðisráðuneytinu. Lagt er til að fasteignafélögum verið gefið tækifæri til að standa að byggingu og rekstri húsnæðisins.
Núverandi hjúkrunarheimili í Vík er komið til ára sinna en þar er rými fyrir 15 einstaklinga. Samhliða fjölgun íbúa á svæðinu er alltaf meiri þörf fyrir pláss á slíku heimili fyrir íbúa.
Nú leggur sveitarstjórn Mýrdalshrepps mikla áherslu á að nýtt fimmtán manna hjúkrunarheimili verði byggt í Vík.
En hvernig er staðan á núverandi heimili? Einar Freyr Elínarson er sveitarstjóri Mýrdalshrepps.
„Aðstaðan er ekki lengur nógu góð. Þetta er orðið gamalt heimili og þetta er bara í okkar huga einn hlekkur í þessari samfélagskeðju, sem er algjörlega jafn mikilvæg og allir aðrir hlekkir. Það er jafn mikilvægt held ég að hafa gott hjúkrunarheimili eins og að hafa góðan leikskóla,” segir Einar Freyr og bætir við.
„Síðan auðvitað snýst þetta líka um það að þetta er ákveðin liður í því að halda fólki hérna hjá okkur, það er að þessi Þjónusta sé til staðar alveg nákvæmlega eins og fjölskyldufólk myndi ekki búa ef það væri ekki leikskóli.”
Og þið eruð að biðja um heimili fyrir 15 hjúkrunarrými?
„Já, það er það sem viljayfirlýsingin gerir ráð fyrir. Það er stærðin eins og hún er í dag en ég sjálfur hefði auðvitað vilja sjá aðeins fleiri hjúkrunarrými en það sem við erum líka á að opna á þarna er að við viljum sjá að sveitarfélagið komið þarna inn með þjónustuíbúðir fyrir aldraða og það er líka möguleiki á því að ríkið skoði að setja heilsugæslu þarna en þa er heilsugæsla hér í Vík, sem er komin á viðhald,” segir Einar Freyr.
Einar Freyr segir að nýtt fyrirkomulag vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila verði notað við byggingu nýs hjúkrunarheimilis í Vík og fasteignafélögum verið þá gefið tækifæri til að standa að byggingu og rekstri húsnæðisins.
„Ég held að þetta geti vel gerst og ég hef væntingar til þess að ráðuneytið muni bregðast vel við þessu,” segir sveitarstjóri Mýrdalshrepps.
Heimild: Visir.is