Útboðsverkið felst í endurnýjun og viðgerðum þaka á stöðvarhúsi Andakílsárvirkjunar, en þrjú þök eru á stöðvarhúsinu. Helstu verk felast í að endurnýja allt bárujárn, pappa og áfellur á þaki auk endurnýjunar á þakrennum, rennuböndum, niðurfallsrörum sem eru ónýt ásamt öðrum fylgihlutum. Einnig á að endurbæta burðarvirki og loftun þaka.
Framkvæmdasvæðið er við Andakílsárvirkjun í Borgarfjarðarsveit.
Helstu verkþættir útboðsverksins eru (með fyrirvara um breytingar á magntölum):
Rif og hreinsun þakklæðningar | 640 | m² |
Endurnýjun þakjárns og þakpappa | 640 | m² |
Endurnýjun áfella | 130 | m² |
Endurnýjun þakrenna, rennubanda | 110 | m |
Endurbætur á útloftunarrörum | 70 | stk |
Snjógrindur | 20 | m |
Verklok heildarverks skulu vera eigi síðar en 31.08.2016
Verkinu er nánar lýst í útboðsgögnum „ONVK-2016-06 Andakílsárvirkjun – Endurnýjun á stöðvarþaki“
Tilboð verða opnuð hjá Orku Náttúrunnar ohf. Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, þriðjudaginn 26. apríl 2016 kl. 10:30.