Home Fréttir Í fréttum Glóru­lausar fram­kvæmdir raski vel­ferð í­búa hjúkrunar­heimilis

Glóru­lausar fram­kvæmdir raski vel­ferð í­búa hjúkrunar­heimilis

45
0
Elín Hirst og fleiri aðstandendur íbúa Sóltúns hafa áhyggjur af því að fyrirhugaðar framkvæmdir muni valda íbúum miklum óþægindum VÍSIR

Aðstandendum íbúa á hjúkrunarheimilinu Sóltúni líst illa á fyrirhugaðar framkvæmdir við húsnæðið. Þau segja að byggingaframkvæmdirnar muni skapa vanlíðan meðal íbúa. Til stendur að bæta rúmlega 60 herbergjum við þau 92 sem fyrir eru, en framkvæmdir hefjast í haust og eiga að taka um tvö ár.

<>

Í morgun birtist pistill á Vísi eftir Elínu Hirst aðstandenda þar sem fram kom að framkvæmdirnar muni hafa í för með sér mikinn hávaða, mengun og annað ónæði.

Hún segir að fæst okkar hafi áhuga á því að búa í húsnæði sem er í smíðum, og hvað þá sjúklingar á Sóltúni, sem eru viðkvæmur hópur. Síðustu ævidagar þeirra verði því afar nöturlegir.

Hún segir hóp aðstandenda hafa tekið sig saman um að standa vörð um velferð íbúa Sóltúns og hafa leitað til yfirvalda með kröfu um að tafarlaust verði hætt við þessar glórulausu framkvæmdir.

Of mikið rask fyrir aldraða og sjúka íbúa
Elín segir í samtali við fréttastofu að hún hafi áhyggjur af íbúum Sóltúns, sem séu sjúkir og aldraðir. Fyrirhugaðar framkvæmdir séu alltof mikið rask fyrir fólk í þessari stöðu.

Hópurinn sé viðkvæmur og geti ekki staðið fyrir máli sínu sjálfur, þess vegna skerist aðstandendur í leikinn og mótmæli.

Elín segir að hjúkrunarheimilið Sóltún sé að öðru leyti mjög gott hjúkrunarheimili og fjölskyldan hennar hafi verið mjög ánægð með þjónustuna þar.

„En maður getur bara ekkert búið á stað þar sem það eru byggingaframkvæmdir. Það er rosalegur hávaði sem fylgir, og ryk, of mikill umgangur, það er verið að bora, það er verið að fræsa, þetta er bara víðamikið verk sem verður,“ segir Elín. Hún segist beina orðum sínum til stjórnvalda, til heilbrigðisyfirvalda.

Elín hefur mjög miklar áhyggjur af þessu, en framkvæmdirnar fari að bresta á.

Vísir hefur sent skriflegar spurningar um málið til forstöðumanna Sóltúns og bíður svara.

Heimild: Visir.is