Verkið felst í að klára að setja efra burðarlag á veg og klára að grafa fyrir nýju Hringtorgi á Gatnamótum Flugvallavegar og Keflavíkurvegur 424ar.
Grafa niður sandföng og setja niðurföll og tengja í púkk. Grafa fyrir nýjum ljósastreng og koma fyrir ljósastaurum. Verkið felst í jarðvegsskiptum, lagnavinnu og yfirborðsfrágangi.
Er þessu nánar lýst í verklýsingu. Verkið skal vinna í samræmi við ákvæði gildandi laga og reglugerða sem eiga við þessa framkvæmd og er verktaki ábyrgur fyrir því að þeim sé fylgt.
Útboðsyfirlit:
- Tegund útboðs: Almennt útboð rafrænt
- EES útboð: Nei
- Skilatími tilboðs. Föstudagurinn 17. maí kl 11:00
- Opnunartími tilboða: föstudaginn 17. maí 2024 kl. 11:02
- Gildistími tilboðs: Fjórar (4) vikur frá opnunardegi.
- Verklok: 22. júli 2024.
- Verðlagsgrundvöllur: Verkið verðbætist ekki
- Frávikstilboð: Eru ekki heimiluð
Útboðsgögn eru tilbúin og fást með því að senda ósk þar um með tölvupósti á innkaupastjori@reykjanesbaer.is. Vinsamlega tilgreinið nafn fyrirtækis sem óskar eftir þátttöku í útboðinu, nafn tengiliðar sem vinnur tilboðið, tölvupóstfang hans og símanúmer.