Vegagerðin býður hér með út efnisvinnslu á Vestfjörðum 2024, malarslitlag. Um er að ræða vinnslu á malarslitlagsefni í þremur námum, í Súðavíkurhreppi, Strandabyggð og Kaldrananeshreppi.
Helstu magntölur:
- – Náma 1 0/16 3.000 m3
- – Náma 2 0/16 3.000 m3
- – Náma 3 0/16 3.000 m3
Verki skal að fullu lokið 30. september 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 3. maí 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. júní 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.