Vegagerðin býður hér með út yfirlagnir á Austursvæði, blettanir með klæðingu.
Helstu magntölur fyrir hvort ár:
- – Blettun á Austursvæði með þjálbiki 58.500 m2
- – Flutningur steinefna 27.495 m3*km
- – Flutningur bindiefna 8.190 m3*km
Verki skal að fullu lokið 1. september 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 29. apríl 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. maí 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.