F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Hverfið mitt 2024 – Austur – Breiðholt og Árbær, útboð nr. 15999
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum verkefnið Hverfið mitt 2024 í austurhluta Reykjavíkurborgar. Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir gröftur, fylling, hellulögn, þökulögn, lýsing og stálsmíði
Helstu magntölur eru:
• Gröftur 380 m3
• Fylling 296 m3
• Cortenstál 646 kg.
• Stálvirki 78 kg.
• Forsteyptur kantsteinn 61 m
• Hellulögn 183 m2
• Þökulögn 154 m2
• Steinefni/salli 100 m2
• Jarðstrengir 148 m
• Ljósastaurar reistir 2 stk.
Verklok: 1. október 2024.
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 12:00 þann 23. apríl 2024.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 14:00 þann 8. maí 2024.