Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð og endurmótun Dímonarvegar (250). Um er að ræða endurmótun á um 3 km löngum vegarkafla frá Hringvegi og rétt norður fyrir vegamót við Auraveg, auk útlagningar burðarlags og klæðingar, breytinga á vegamótum og gerð hjáreina/vasa.
Helstu magntölur eru:
- – Skeringar 3.400 m3
- – Fyllingar 2.400 m3
- – Fláafleygar 1.000 m3
- – Styrktarlag 7.500 m3
- – Burðarlag 3.600 m3
- – Tvöföld klæðing 21.000 m2
- – Frágangur fláa 21.000 m2
- – Girðingar 240 m
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 22. apríl 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7.maí 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign