Allt að 1.900 fermetra stækkun verk- og starfsnámsaðstöðu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Reykjanesbæ mun rísa á næstu árum samkvæmt samningi sem var undirritaður var síðasta laugardag milli mennta- og barnamálaráðuneytisins og sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Frumathugun á framkvæmdinni er í höndum Framkvæmdasýslu ríkisins en skoðað verður að áfangaskipta henni.
Í fyrri áfanga verður byggð allt að 1.400 fermetra viðbygging og í seinni áfanga verður byggð 500 fermetra bygging. Stofnkostnaður skiptist milli aðila og mun ríkissjóður greiða 60% en sveitarfélögin 40% samkvæmt samningi.
Stefnt er að því að byggja samtals 12.000 fermetra fyrir verk- og starfsnám um allt land auk nýrra höfuðstöðva Tækniskólans en Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur sett stækkun slíkra skóla í forgang á kjörtímabilinu.
Þetta er í samræmi við þá miklu og auknu aðsókn sem hefur verið í verk- og starfsnám á undanförnum árum.
Samningurinn sem undirritaður var í Reykjanesbæ er liður í þeim áformum en með undirrituninni er staðfest samkomulag milli ríkis og sveitarfélaganna um fjármögnun verkefnisins og eru næstu skref, undirbúningur, hönnun og bygging.
Heimild: VF.is