Akraneskaupstaður óskar eftir tilboði í lóðarfrágang við Jaðarsbakka 1.
Verkið felur í sér m.a lagnavinnu í lóð, raflagnir í lóð, uppsetningu ljósastaura, hellulögn, malbikun lóðar og bílastæða sem og uppsetningu leiktækja umhverfis nýtt íþróttahús á Jaðarsbökkum
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá fimmtudeginum 4. apríl 2024 í gegnum útboðsvef Akraneskaupstaðar, slóð https://akranes.ajoursystem.net/.
Tilboðum með umbeðnum gögnum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 24. apríl 2024.
Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.
Skipulags- og umhverfissvið Akraneskaupstaðar