ONVK-2024-05 Glerártorg – Hleðslugarður – Jarðvinna
Verktaki tekur að sér verkið „Glerártorg – Hleðslugarður – Jarðvinna“. Verkið felst í stuttu máli því að setja upp hleðsluinnviði fyrir rafbíla við Glerártorg, Akureyri.
Svæðið verður upplýst og settar verða upp sex (6) hleðslustöðvar auk annars búnaðar í samræmi við verklýsingu.
Helstu verkþættir eru jarðvinna, fyllingar, skurðgröftur, frágangur undirstaða, uppsetning á dreifistöðvaskýli, yfirborðsmerkingar og annar frágangur.
Útboðsgögn afhent: | 03.04.2024 kl. 14:40 |
Skilafrestur | 17.04.2024 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 17.04.2024 kl. 14:00 |
Nánari upplýsingar í útboðsgögnum sem finna má á útboðsvef Orkuveitunnar.