Home Fréttir Í fréttum Út­hlut­un lóða í Langa­tanga og Fossa­tungu í Mos­fells­bæ

Út­hlut­un lóða í Langa­tanga og Fossa­tungu í Mos­fells­bæ

274
0

Úr fundargerð bæjarráðs Mos­fells­bær þann 21. mars 2024.

<>

Niðurstaða úthlutunar lóða við Fossatungu og Langatanga lögð fram til kynningar.

Til­boð í aug­lýst­ar lóð­ir voru opn­uð á 1606. fundi bæj­ar­ráðs. Alls bár­ust 26 til­boð, sjö til­boð í ein­býl­is­húsa­lóð­ir við Fossa­tungu og 29 til­boð í rað­húsa­lóð­ir við Langa­tanga.

Á 1607. fundi sam­þykkti bæj­ar­ráð að taka til­boð­um þar sem hæsta verð í hverja lóð skyldi lagt til grund­vall­ar með fyr­ir­vara um að til­boðs­gjaf­ar upp­fylltu öll skil­yrði um hæfi.

Jafn­framt var sam­þykkt að veita bæj­ar­stjóra um­boð til að sam­þykkja til­boð í lóð­ir í þeim til­vik­um sem til­boðs­gjaf­ar féllu frá til­boð­um sín­um eða upp­fylltu ekki hæfis­skil­yrði og skyldi þá taka til­boði að­ila sem næst­ir voru í röð­inni hvað til­boðsverð varð­ar.

Lóð­un­um var út­hlutað til eft­ir­far­andi að­ila:
– Fossa­tunga 28 til Bjarna Boga Gunn­ars­son­ar, til­boðsverð kr. 18.150.000
– Fossa­tunga 33 til Ást­ríks ehf., til­boðsverð kr. 15.276.000
– Langi­tangi 27 til Luxor ehf., til­boðsverð kr. 45.000.000
– Langi­tangi 29 til Luxor ehf., til­boðsverð kr. 40.000.000
– Langi­tangi 31 til Luxor ehf., til­boðsverð kr. 40.000.000
– Langi­tangi 33 til Luxor ehf., til­boðsverð kr. 35.000.000

Heimild: Mos­fells­bær