Vegagerðin býður hér með út yfirlagnir á Norðursvæði með klæðingu árið 2024.
Helstu magntölur eru:
- – Yfirlagnir með einföldu lagi klæðingar 550.806 m2
- – Yfirlögn með kílingu 52.668 m2
- – Flutningur steinefna 7.653 m3
- – Flutningur bindiefna 984 m3
Verki skal að fullu lokið 1. september 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 25. mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. apríl 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign