Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í : „Rammasamning um tímavinnu iðnaðarmanna“
Markmið útboðsins er að kaupa fjölbreytta þjónustu iðnaðarfólks í og við stofnanir, mannvirki og lóðir sveitarfélagsins Mosfellsbæjar á hagkvæmu verði og að uppfylltum kröfum um gæði þjónustunnar, m.a. með tilliti til eðlis þeirrar þjónustu sem sinnt er innan viðkomandi stofnana.
Útboði þessu er skipt upp í tíu flokka. Bjóða má í einn eða fleiri flokka útboðsins.
- FLOKKUR 1 – RAFLAGNAVINNA
- FLOKKUR 2 – PÍPULAGNAVINNA
- FLOKKUR 3 – MÁLMIÐNAÐARVINNA
- FLOKKUR 4 – MÚRVINNA
- FLOKKUR 5 – MÁLNINGARVINNA
- FLOKKUR 6 – TRÉSMÍÐI
- FLOKKUR 7 – UMHIRÐA LÓÐA
- FLOKKUR 8 – BLIKKSMÍÐI
- FLOKKUR 9 – DÚKALÖGN
- FLOKKUR 10 – RAFVÉLAVIRKJUN
Samningar ná til 31.12.2025 með möguleika á framlengingu til tveggja ára, eitt ár í senn. Frávikstilboð verða ekki leyfð.
Óska skal eftir útboðsgögnum með tölvupósti í gegnum mos@mos.is, útboðsgögn verða afhent frá og með 19. mars 2024.
Tilboðum ásamt umbeðnum gögnum skal skila rafrænt í tölvupósti á netfangið mos@mos.is. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og bjóðendur eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Skilafrestur tilboða er til kl. 10:00 föstudaginn 26. apríl 2024
Opnun tilboða fer fram rafrænt. Við opnun tilboða verða nöfn bjóðenda skráð í fundargerð og tilboðsfjárhæð í viðkomandi flokki af tilboðseyðublaði. Fundargerð opnunarfundar verður birt á mos.is og send á bjóðendur.
Útboð þetta er auglýst á evrópska efnahagssvæðinu, sjá; 164081-2024 – Competition – TED (europa.eu)