Upphaf fyrsta brugghússins á Vestfjörðum má rekja til afdrifaríks símtals frá mági framkvæmdastjórans. Hann vann við að múra þegar símtalið kom en mánuði eftir það var brugghúsið orðið að veruleika.
Aðeins eitt brugghús er starfrækt á Ísafirði en það er Dokkan. Hugmyndin að brugghúsinu kviknaði hinu megin á landinu.
„Þetta var svona frekar óvænt. Mágur minn var á ferðalagi á Austurfjörðum á Breiðdalsvík í annarri vinnu og hann hringir í mig og spyr Hákon af hverju er ekki brugghús á Ísafirði og ég hugsaði bara svona ég veit það ekki og þá spyr hann getum við gert eitthvað í því. Ég segi bara já örugglega. Mánuði seinna vorum við búnir að stofna fyrirtæki,“ segir Hákon Hermannsson framkvæmdastjóri Dokkunnar.
Hákon var sjálfur að gera allt aðra hluti þegar símtalið kom.
„Ég var náttúrulega bara að vinna í múrverki á þessum tíma og þetta var ekkert á stefnuskránni. Þegar við stofnuðum þetta hugsaði ég okei ég brugga kannski einn tvo daga í viku og múra hina en svo hef ég ekkert farið út úr brugghúsinu.“
Hann segir fyrirtækið hafa vaxið hratt og starfið vera fjölbreytt. Þá hefur Hákon verið duglegur við að gera tilraunir og bruggar meðal annars þarabjór.
Leyniefni er í öllum bjórunum en efnið er þó ekki meira leyndarmál en svo að Hákon er til í að deila því.
„Við eigum náttúrulega besta vatn í heimi hérna á Vestfjörðum. Ég held að líka að við erum ástríðufullir og leggjum mikinn metnað í þetta. Þannig að ég held að góðmennskan og passionið fari út í bjórinn.“
Þá er nú verið að brugga sérstakan bjór í brugghúsinu líkt og síðustu ár fyrir tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður sem verður á Ísafirði um páskana. Hákon segir tónlistarmanninn Mugison, sem er einn af stofnendum hátíðarinnar, hafa verið með sérósk um að bjórinn í ár yrði glútenlaus.
„Hann vildi að ég myndi skýra bjórinn múkki en múkki átti að vera tilvitnun í það að þegar hann drekkur glútenbjóra þá ælir hann eins og múkki þannig ég held að það sé tilvitnunin en ekki Mugison.“
Heimild: Visir.is