Home Fréttir Í fréttum Tveggja milljarða velta Metal

Tveggja milljarða velta Metal

95
0
Karl Gunnar Eggertsson og Pétur Smári Richardsson eiga samanlagt 95% hlut í Metal en Pétur er einnig framkvæmdastjóri félagsins. Ljósmynd: Eva Björk Ægisdóttir

Innflutningsfyrirtækið Metal ehf. hagnaðist um 103 milljónir króna í fyrra.

<>

Innflutningsfyrirtækið Metal ehf. hagnaðist um 103 milljónir króna í fyrra samanborið við 148 milljón króna hagnað árið áður.

Tekjur félagsins námu 1,9 milljörðum króna en voru 2,1 milljarðar árið áður. Í skýrslu stjórnar segir m.a. að veiking krónunnar, þegar líða tók á árið, hafi leitt til gengistaps í árslok upp á tæpar 7 milljónir króna.

Skjáskot af Vb.is

Þeir Karl Gunnar Eggertsson og Pétur Smári Richardsson eiga sitthvorn 47,5% hlutinn í félaginu og Einar Þór Jónsson á 5% hlut. Þá er Pétur framkvæmdastjóri félagsins.

Heimild: Vb.is