F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Ævintýraborg Vörðuskóla – lóðafrágangur, útboð nr. 15973
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felur í sér frágang lóðar fyrir nýjan tímabundinn leikskóla við Vörðuskóla, sem
er hluti af verkefninu „Ævintýraborgir“.
Helstu verkþættir eru jarðvegsskipti, hellulögn, lagning kantsteina og kanta, frágangur
fallvarnarefna (gervigras, gúmmímottur), gröftur fyrir leiktækjum og búnaði, uppsetning
girðinga á lóðamörkum, uppsetning stoðveggjar, og frágangur ræktunarsvæða.
Helstu magntölur eru:
Gröftur og brottakstur 90 m3
Fylling 150 m3
Hellulögn 140 m2
Gervigras 270 m2
Kantsteinslögn 100 m
Grasþökur 984 m2
Steyptur stoðveggur 150 m2
Möl sem yfirborðsefni 342 m2
Malbik og mulningur 242 m2
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 14:00 þann 13. mars 2024. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:15 þann 3. apríl 2024.