Home Fréttir Í fréttum Ferðin yfir nýja Ölfus­ár­brú mun kosta 500 krónur

Ferðin yfir nýja Ölfus­ár­brú mun kosta 500 krónur

171
0
Reiknað er með að það muni kosta um 500 krónur að aka yfir nýja brú yfir Ölfusá þó það sé ekki 100 % niðurneglt. MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Kostnaður við byggingu nýrrar Ölfusárbrúar austan við Selfoss verður væntanlega um fjórtán milljarðar króna en honum verður mætt með vegjöldum en reiknað er með að ferðin muni kosti fimm hundruð krónur á bíl. Áfram verður hægt að aka ókeypis yfir núverandi Ölfusárbrú.

<>

Svanur Bjarnason, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Suðurlandi var nýlega með kynningu á nýju Ölfusárbrúnni á opnu húsi hjá eldri borgurum á Selfossi enda mikill áhugi hjá íbúum að fá að vita um stöðu verkefnisins og hvernig það er hugsað. Í gær voru opnuð tilboð í hönnun og smíði brúarinnar en aðeins eitt tilboð barst, eða frá ÞG verktökum.

„Þetta er stagbrú sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Mér finnst hún bara mjög fallegt mannvirki. Þetta er þversnið brúarinnar en hún er sem sagt 19,5 metrar á breidd brúardekkið og það er gert ráð fyrir að fyrstu árin verði þetta tvær akreinar í aðra áttina og ein í hina og gönguleið þá inn á gólfinu en síðan í framtíðinni á að flytja gönguleiðina út fyrir og þá verða tvær akreinar í báðar áttir,“ segir Svanur.

Hverju mun brúin breyta?

„Núverandi brú er orðin mjög lúin og þröng og þar myndast bara umferðartappar, þannig að það liðkast fyrir alla umferð hérna um Suðurlandið getum við sagt með þessari nýju brú,“ segir Svanur.

Svanur Bjarnason, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Suðurlandi
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Fram kom í máli Svans að gjaldtaka yfir brúna eigi að standa straum af hönnun og kostnaði við byggingu hennar, sem áætlaður er um 14 milljarðar króna. Honum finnst ekki ólíklegt að kostnaður við að aka yfir brúna verður 500 krónur á bíl.

Mikill umferðarþungi er á núverandi brú yfir Ölfusá og því brýnt að fá nýja sem fyrst til að létta á þeirri gömlu. Áfram verður hægt að aka yfir þá gömlu þó ný brú verði komin í notkun og það mun ekki kosta krónu.

Útlit nýju brúarinnar yfir Ölfusá, sem á að vera tilbúin í lok sumars 2027 ef allt gengur eftir.
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

„En hún hefur alveg fullt burðarþol ennþá,“ segir Svanur.

En ef allt gengur upp, hvenær verður nýja brúin þá tilbúin?

„Það er stefnt að því í sumarlok 2027. Við verðum að reikna með því að það gangi upp,“ segir Svanur að lokum.

Heimild: Visir.is