Home Fréttir Í fréttum Grind­víkingar í hjólhýsum og pínu­litlum í­búðum

Grind­víkingar í hjólhýsum og pínu­litlum í­búðum

82
0
Það er tómlegt um að lítast í Grindavík þessa dagana. Forseti bæjarstjórnar segir þó að margir íbúar sjái enn fyrir sér framtíð í bænum. VÍSIR/VILHELM

Forseti bæjarstjórnar í Grindavík segir 130 fjölskyldur úr Grindavík enn búa við óviðunandi húsnæðiskost. Dæmi séu um fólk sem búi í hjólhýsum og fjölskyldur í um tuttugu fermetra íbúðum. Farið er fram á frekari stuðning ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum.

<>

Bæjarstjórn Grindavíkur, Félag eldri borgara í bænum, Verkalýðsfélag og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur hafa sent frá sér samstöðuyfirlýsingu þess efnis að frekari stuðningur við Grindvíkinga sé nauðsynlegur.

Í yfirlýsingunni er farið þess á leit við yfirvöld að Grindvíkingar njóti sömu kjara og fyrstu kaupendur fasteigna.

„Þá erum við að tala um afslátt af stimpilgjöldum, skattfrjálsa úttekt á uppsöfnuðum séreignasparnaði og aukið aðgengi hlutdeildarlánum þó svo að við höfum átt fasteignir áður,” segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Grindavík.

Ljóst að yfirvöld þurfi að ganga lengra
Að sögn Ásdísar er töluvert tap á fjármunum fasteignaeigenda fyrirsjáanlegt þrátt fyrir sterka eiginfjárstöðu, auk þess sem íbúar hafi orðið fyrir miklum útgjalda aukningum í kjölfar náttúruhamfaranna.

Staða margra Grindvíkinga sé því gríðarlega erfið nú þegar þeir leita leiða til að koma sér fyrir á þöndum fasteignamarkaði og ljóst að yfirvöld þurfi að ganga lengra í stuðningi sínum.

„Ég held að landsmenn geri sér almennt ekki grein fyrir hversu grafalvarleg staðan er á húsnæðismarkaðnum varðandi húsnæðismál Grindvíkinga,“ segir Ásdís.

„Við erum að tala um 130 fjölskyldueiningar sem eru enn þá í óviðunandi húsnæði. Fólk búandi í hjólhýsum og fjölskyldur í einhverjum tuttugu og sex fermetrum. Þannig betur má ef duga skal, segi ég nú bara. Það er ljóst að yfirvöld þurfa að ganga enn lengra til að styðja okkur.“

Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Grindavík.
VÍSIR

Þá segist Ásdís hafa áhyggjur af því að fjárhagsáhyggjur bætist ofan á þetta mikla áfall sem Grindvíkingar séu staddir í.

„Til dæmis barnafjölskyldur sem hafa verið að sníða sér stakk eftir vexti í fjármálum heimila, að þær séu að spenna bogann og fjárfesta í hæstu hæðum greiðslugetu til að fá hentugt húsnæði.“

Margir sjái framtíð í Grindavík
Sértækur húsnæðisstuðningur ríkisstjórnarinnar til að lækka húsnæðiskostnað Grindvíkinga sem leigja húsnæði utan Grindavíkurbæjar rennur út 31. ágúst en Ásrún segir mikilvægt að framlengja þann stuðning til áramóta.

„Það er ekki allir sem vilja láta kaupa húsin sín, það eru margir sem sjá framtíðina heima í Grindavík og vilja láta reyna á það,“ Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Grindavík.

Heimild: Visir.is