Home Fréttir Í fréttum Keflavíkurborgir verði nýtt hverfi í Reykjanesbæ

Keflavíkurborgir verði nýtt hverfi í Reykjanesbæ

281
0

Kynningu á skipulagslýsingu fyrir nýtt hverfi í Reykjanesbæ, Keflavíkurborgir, er lokið.

<>

Gert er ráð fyrir 170-200 einbýlis-, par-, rað- og fjölbýlishúsalóðum á svæðinu sem afmarkast af Garðskagavegi, Hringbraut og Heiðarbergi.

Nokkrar umsagnir bárust við skipulagstillögna, samkvæmt fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar, Míla minnir á strenglagnir, framkvæmda- og skipulagsráð Suðurnesjabæjar leggur áherslu á að fyrirhuguð uppbygging hafi ekki áhrif á umferðarflæði og hraða um Garðskagaveg frá því sem nú er.

Þá bendir Náttúrufræðistofnun Íslands á að svæðið er innan mikilvægs fuglasvæðis, Rosmhvalaness, en þar er langstærsta sílamáfsvarp landsins og því er æskilegt að framkvæmdir hefjist utan varptíma svo þær hafi sem minnst áhrif á fuglalíf.

Umhverfis- og skipulagsráð óskar eftir að tekið verði tillit til innsendra ábendinga og lögð verði fram tillaga á vinnslustigi.

Samkvæmt framlagðri tímalínu er gert ráð fyrir að bæjarstjórn samþykki að senda Skipulagsstofnun skipulagið til samþykktar í apríl eða maí næstkomandi og í framhaldinu til auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda, í júní.

Heimild: Sudurnes.net