Frumvarp um tímabundinn rekstrarstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ og frumvarp um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík voru í kvöld samþykkt á Alþingi.
Allir viðstaddir þingmenn greiddu atkvæði með málunum.
Nokkrar breytingar voru gerðar á frumvarpinu um uppkaup á íbúðarhúsnæði. Verður Grindvíkingum til að mynda gefinn frestur til áramóta til að ákveða hvort þeir vilji selja eign sína.
Samþykkt eftir miðnætti
Dagskrá þingsins dróst á langinn og voru frumvörpin ekki samþykkt fyrr en níu mínútum eftir miðnætti.
Þurfti að fresta umræðu um frumvarp dómsmálaráðherra, um breytingar á útlendingalögum, sem var á dagskrá þingsins í gær.
Heimild: Mbl.is