kipulagsnefnd Kópavogsbæjar samþykkti á dögunum að taka Kópavogsgöng af aðalskipulagi. Göngin áttu að liggja milli Fossvogs og Kópavogsdals í beinu framhaldi af Öskjuhlíðargöngum. Þau hafa verið á aðalskipulaginu frá því fyrir aldamótin en ekki var gert ráð fyrir þeim í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins til ársins 2040, sem samþykkt var í fyrra.
Í umfjöllun Morgunblaðsins árið 2000 kom fram að göngin væru talin kosta 8 til 9 milljarða króna, jafnvirði 18-20 milljarða króna á núverandi verðlagi.
Birgir H. Sigurðsson, skipulagsstjóri Kópavogs, segir í samtali við Viðskiptablaðið að göngin séu tekin af skipulagi vegna nýrra áherslna í samgöngumálum. „Þetta er feiknarmikið mannvirki og þegar menn fara að hugsa þetta í rólegheitunum þá sjá menn að það er hægt að bæta almenningsvagnakerfið mikið fyrir þann pening sem þarf í þetta,“ segir Birgir.
Heimild: Vb.is