Eykt hefur byrjað framkvæmdir við uppsteypun á nýju rannsóknahúsi. Undanfarnar vikur hafa starfsmenn á gröfum verið að störfum við að skafa og hreinsa klappir vegna steypunar þrifalaga.
„Steypun þrifalaga hófst um miðjan janúar. Nú er bara að vona að veðrið verði skikkanlegt á næstunni því afköst þessarar vinnu í grunni byggingarinnar er mjög háð hitastigi og veðri.
Búast má við að við förum að sjá bygginguna rísa upp úr grunninum með haustinu,” segir Ásbjörn Jónsson sviðsstjóri framkvæmdasviðs.
Heimild: NLSH.is