Home Fréttir Í fréttum Lagt til að Landsbankahúsið verði selt ásamt byggingarreit við Suðurgötu

Lagt til að Landsbankahúsið verði selt ásamt byggingarreit við Suðurgötu

167
0

Bæjaráð Akraness leggur til að gamla Landsbankahúsið við Akratorg verði sett í söluferli – og að byggingareitur við Suðurgötu 47 verði hluti af útboðs – og hugmyndaferlinu.

<>

Um miðjan janúar tók skipulags – og umhverfisráð málið fyrir á fundi og lagði fram þá tillögu að auglýst verði eftir eftir áhugasömum aðilum til uppbyggingar til að efla miðbæjarstarfsemi og mannlíf.

Gamla Landsbankahúsið hefur lengið verið í umræðunni á Akranesi og Miðbæjarsamtökin Akratorg hafa lagt til að húsið verði nýtt undir starfssemi bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar.

Og að Suðurgata 47 verði hluti af útboðs/hugmyndar ferlinu. Við yfirferð tilboða/hugmynda verði horft annars vegar til verðs og hins vegar til hugmyndar og uppbyggingu á reitnum. Ráðið leggur til að þessi vinna verði sameiginlega meðal ráðsins og bæjarráðs.“

Hér er yfirlitsmynd af byggingareit við Suðurgötu 47 á Akranesi.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nýverið að þessari aðferðarfræði verði beitt og óskar eftir að skipulags- og umhverfisráð útfæri nánar skilmála væntanlegrar auglýsingar/útboðs svo sem vægi verðs og hugmynda vegna uppbyggingar á reitnum.

Heimild: Skagafrettir.is