Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirborðsmerkingar akbrauta með málningu á fjórum svæðum Vegagerðarinnar, þ.e.a.s. Suðursvæði, Vestursvæði, Norðursvæði og Austursvæði. Um er að ræða málun miðlína og kantlína á vegum með bundið vegyfirborð árin 2024-2026.
Verkið er boðið út til þriggja ára með möguleika á framlengingu verksamnings sumarið 2027 og sumarið 2028.
Verkið felst í yfirborðsmerkingum akbrauta. Áætlað verkmagn er 4.910 km.
Helstu magntölur, miðað við eitt ár, eru:
- Miðlínur 1.950 km
- Kantlínur 2.960 km
- Viðverudagar 80 dagar
Verki skal að fullu lokið 1. september ár hvert.
Útboðsgögnin eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 24. janúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. febrúarr 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign