Þelamörk ehf. hefur hafið vinnu við að koma upp vinnurafmagni, lýsingu og vinnulögnum í meðferðarkjarna. Búið er að koma heimtaugum inn í hús og setja upp aðaltöflu fyrir rafmagn.
Vinna við uppsetningu strengstiga, dreifitaflna og vinnulýsingar er nú í fullum gangi. Upp úr miðjum janúar hefst svo einnig vinna við útlagningu vinnulagna og tengingar við vinnusalerni á efri hæðum hússins.
Heimild: NLSH.is