Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Jarðvinna við hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands

Jarðvinna við hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands

187
0
Mynd: NLSH.is

Háfell hefur á undanförnum vikum unnið að greftri lausra jarðlaga fyrir húsi Heilbrigðisvísinda Háskóla Íslands (norðan og austan Læknagarðs).

<>

Lausgreftri er nú lokið og undirbúningur fyrir losun klappar er hafinn. Neðsta hæð hússins liggur einni hæð ofar en neðstu hæðir meðferðarkjarna og rannsóknahúss og því verður um talsvert minni berglosun að ræða heldur en í þeim húsum.

Berglosun verður framkvæmd með sprengingum og með sama hætti og viðhafður hefur verið í meðferðarkjarna og rannsóknahúsi, þ.e. sprengt verður þrisvar á dag kl. 11:00, 14:30 og 17:30.

Gert er ráð fyrir að jarðvinnu við húsið ljúki fyrir miðjan febrúar.

Heimild: NLSH.is