F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Málun 2024, í hverfum 6,7 og 8, 9, 10 í fasteignum Reykjavíkurborgar, útboð nr. 15953
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verk þetta felst í málun inni og úti í fasteignum Reykjavíkurborgar í hverfum 6,7 og 8,9,10
Lokaskiladagur verksins: 31. desember 2024.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 16:00 þann 16. janúar 2024. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 12. febrúar 2024.