Home Fréttir Í fréttum Vatnsrennsli vatnsveitu í Súgandafirði tvöfaldað með nýrri lögn

Vatnsrennsli vatnsveitu í Súgandafirði tvöfaldað með nýrri lögn

88
0
Mynd: Verkís

Endurnýjun vatnslagnar fyrir vatnsveitu í Súgandafirði lauk fyrir nokkru, en verkið hófst sumarið 2022. Með nýrri lögn tvöfaldaðist vatnsrennslið í vatnsveitunni.

<>

Fyrri vatnslögn frá Staðardal til Suðureyrar var 140 mm í þvermál og hafði verið í notkun í nær 50 ár. Lögnin annaði ekki alltaf vatnsþörfinni í bænum þannig að rekstraröryggi vatnsveitunnar var ótryggt.

Ný lögn er 180 mm í þvermál og með henni hefur rennsli til Suðureyrar aukist úr 35-40 rúmmetrum á klukkustund í 80 rúmmetra á klukkustund.

Verkinu var skipt í tvo áfanga og fengust styrkir úr Fiskeldissjóði fyrir þeim báðum, samtals upp á 53,8 m.kr.

Áætlaður heildarkostnaður verksins var 130 m.kr. en við verklok var áfallinn kostnaður 103,8 m.kr.

Verktaki í fyrri áfanga var Verkhaf og í seinni áfanga var verktakinn Gröfuþjónusta Bjarna. Um hönnun og eftirlit sá Verkís.

Heimild: Isafjordur.is