Seldar hafa verið 40 af 133 nýjum íbúðum í þremur nýjum fjölbýlishúsum í miðborginni sem fóru í sölu í haust.
Í fyrsta lagi er búið að selja 23 íbúðir af 64 í Borgartúni 24. Samkvæmt fasteignaskrá er búið að skrá 12 þessara seldu íbúða á nýja eigendur.
Af þeim á Brynja – leigufélag Öryrkjabandalagsins sex íbúðir, Kennarasamband Íslands fjórar íbúðir og Báran stéttarfélag eina íbúð. Ein seld íbúð er skráð á einstaklinga.
Ein seld einstaklingum
Í öðru lagi er búið að selja 10 af 35 íbúðum á Snorrabraut 62. Samkvæmt fasteignaskrá er búið að skrá þrjár þessara íbúða á Félagsbústaði og eina íbúð á einstaklinga.
Í þriðja lagi er búið að selja sjö íbúðir af 34 í Skipholti 1. Samkvæmt fasteignaskrá eru þrjár þessara íbúða skráðar á Félagsbústaði, tvær á Brynju og tvær á einstaklinga. Félagið Snorrahús byggir íbúðirnar á Snorrabraut 62.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.
Heimild: Mbl.is