Home Fréttir Í fréttum Samkvæmt nýju hraunflæðilíkani nálgast hraun Grindavíkurveg á jóladag

Samkvæmt nýju hraunflæðilíkani nálgast hraun Grindavíkurveg á jóladag

78
0
RÚV – Ragnar Visage

Samkvæmt nýjum hraunflæðilíkönum eru þeir innviðir sem helst gætu verið í hættu Grindavíkurvegur, hitaveitulögn og raflagnir.

<>

Út frá gefnum forsendum líkansins ógnar hraun þeim þó ekki næstu vikuna.

Vísindamenn keyrðu í dag ný hraunflæðilíkön. Sérfræðingur segir að þeir innviðir sem helst geti verið í hættu séu Grindavíkurvegur, hitaveita og raflagnir út á Reykjanesskaga.

Líkanið má sjá hér að neðan. Það sýnir framhaldið næstu vikuna, fram til kvölds 25. des, út frá þeim forsendum sem vísindamenn töldu líklegastar. Takmarkaðar mælingar á hraunflæði liggja hins vegar fyrir.

RÚV-Skjáskot

Heimild: Ruv.is