Iðnskólar landsins eru komnir að þolmörkum. Þörf er á að bæta við húsnæði og aukið rekstrarfé skortir til að geta tekið við fleiri nemendum. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar greiningar Samtaka iðnaðarins (SI) sem birt er í dag.
Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu hefur verið skortur á iðnmenntuðum á vinnumarkaði á síðustu árum en á sama tíma hefur 600-1.000 nemendum verið vísað frá iðnnámi samanlagt á haust- og vorönn.
Skila halla til að mæta miklum fjölda umsókna
Samkvæmt greiningu SI er húsnæði iðnskóla landsins fullnýtt. „Meta skólarnir sem svara könnuninni að þeir geti tekið við samanlagt 4.876 nemendum innan núverandi húsnæðis.
Heildarfjöldi í iðnnámi hjá þessum skólum er nú 4.653 og er nýtingarhlutfallið því ríflega 95%,“ segir í greiningunni þar sem vísað er í könnun SI meðal skólastjórnenda.
Þar kemur jafnframt fram að áætlaður kostnaður við iðnnám við þá skóla sem svara könnuninni sé tæplega 9,5 milljarðar króna á þessu skólaári.
Samkvæmt könnuninni taka flestallir iðnskólar við fleiri nemendum en sem nemur fjármagninu sem til þeirra er úthlutað í fjárlögum. Margir iðnskólar skila því halla til að mæta þeim mikla fjölda sem sækir um nám í skólunum.
Vantar um einn milljarð
Rétt um einn milljarð króna vantar í skólana til að ná endum saman og fullnýta skólahúsnæðið. Þar fyrir utan vantar annan milljarð inn í skólana til að bæta tækjakost í núverandi húsnæði svo unnt sé að bjóða upp á iðnnám sem stenst nútímakröfur. Auk þess vantar fjármagn til að fjölga kennurum, segir í greiningunni.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í gær.
Heimild: Mbl.is