Home Fréttir Í fréttum Vígsla nýrra skíðamannvirkja í Bláfjöllum

Vígsla nýrra skíðamannvirkja í Bláfjöllum

88
0
Ljósm. Jón Ragnar Jónsson og Helga Björnsdóttir

Drottning, Gosi og nýtt snjóframleiðslukerfi
Um helgina fór fram vígsla og formleg opnun nýrra skíðamannvirkja í Bláfjöllum.

<>

Við það tækifæri héldu fulltrúar sveitarfélaganna og framkvæmdaaðila stuttar tölur og gestir tóku sér ferð með nýrri stólalyftu og skoðuðu svæðið en veður var með fallegasta móti.

Um er að ræða nýju stólalyfturnar Drottningu og Gosa og nýtt snjóframleiðslukerfi sem hefur verið sett upp á svæðinu. Þá hefur aðstaða fyrir skíðagöngufólk verið stórbætt með nýrri salernisaðstöðu, snjógirðingum og lýsingu.

Vonir standa til þess að framangreindar framkvæmdir stórbæti upplifun notenda af svæðinu svo og þess að unnt verði að fjölga opnunardögum með tilkomu snjóframleiðslu.

Ljósm. Jón Ragnar Jónsson og Helga Björnsdóttir

Tilkynning á vef SSH

Samkomulag um viðamikla uppbyggingu á skíðasvæðunum

Eru þessar framkvæmdir samkvæmt samkomulagi um viðamikla uppbyggingu á skíðasvæðunum, en vinna vegna þess hefur staðið yfir á vettvangi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) allt frá árinu 2018, en þá var undirritað samkomulag eigenda skíðasvæðanna: Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness um endurnýjun og uppbyggingu mannvirkja á svæðinu.

Markmið þessara framkvæmda er að bæta aðstöðu og þjónustu fyrir alla hópa skíðaiðkenda. Verkefnið í heild sinni hefur gengið vel og samkvæmt áætlunum.

Framleiðsla og uppsetning á nýjum skíðalyftum var í höndum austurríska fyrirtækisins Doppelmayr í samstarfi við ÍAV og ítalska fyrirtækið TechnoAlpin sá um framleiðslu og uppsetningu á snjóframleiðslubúnaði, einnig í samtarfi við ÍAV.

Borun vinnsluholu vegna uppistöðulóns fyrir snjóframleiðslu var í höndum Ræktunarsambands Flóa og Skeiða. Verkefnastjórn var í höndum VSÓ Ráðgjafar í samstarfi við skíðasvæðin, SSH og sveitarfélögin.

Upplýsingar um opnun á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins má finna á vef skíðasvæðanna og Facebooksíðu

Heimild: Hafnarfjordur.is