Home Fréttir Í fréttum 05.04.2016 Úlfarsárdalur, hverfi 1. Yfirborðsfrágangur 2016

05.04.2016 Úlfarsárdalur, hverfi 1. Yfirborðsfrágangur 2016

172
0
Séð yfir Úlfarsárdal.

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Úlfarsárdalur, hverfi 1. Yfirborðsfrágangur 2016, útboð nr. 13686.

Verkið felst í því að jafna undir gangstéttar, leggja snjóbræðslu, reisa ljósastólpa, steypa kantsteina, steypa stétt og leggja hellur og ganga frá gróðursvæðum.
Helstu magntölur eru:
 Gröftur 280 m3
 Fylling 100 m3
 Snjóbræðslulagnir 420 m2
 Kantsteinn 490 m
 Steypt stétt 870 m2
 Hellulögn 540 m2
 Þökulögn 190 m2
 Gróðurbeð 460 m2
 Reisa ljósastólpa 5 stk
Lokaskiladagur verksins er 15. október 2016.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 3.000 frá og með þriðjudeginum 22. mars 2016 í afgreiðslu þjónustuvers Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12 – 14, 105 Reykjavík.
Opnun tilboða: Þriðjudaginn 5. apríl 2016 kl. 10:00 í Borgartúni 12-14. Tilboðum skal skilað í þjónustuver Reykjavíkurborgar.