„Hraunið er eitt af því sem gerir Vestmannaeyjar hentugar undir fiskeldi. Það er tiltölulega auðvelt að vinna landið undir því og mun ódýrara heldur en að þurfa að sprengja líkt og gert er þegar menn vinna hefðbundnari jarðveg með bergi í.“
Þetta segir Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður landeldisfyrirtækisins Laxeyjar, í samtali við Morgunblaðið um formlega opnun nýrrar seiðaeldisstöðvar fyrirtækisins í Friðarhöfn í Vestmannaeyjum á föstudag.
„Seiðaeldisstöðin er byggð við höfnina en áframeldið, þ.e. landeldið sjálft, verður á nýja hrauninu, í Viðlagafjöru, og þar erum við algjörlega að byggja á nýju landi,“ segir Lárus.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
Heimild: Mbl.is