Home Fréttir Í fréttum 19.12.2023 Vestfjarðavegur (60), Fjarðarhornsá og Skálmardalsá

19.12.2023 Vestfjarðavegur (60), Fjarðarhornsá og Skálmardalsá

195
0
Mynd: Vegagerðin.is

Vegagerðin býður hér með út smíði tveggja steinsteyptra eftirspenntra 34 m plötubrúa yfir Fjarðarhornsá og Skálmardalsá, ásamt vegagerð við hvora brú fyrir sig, samtals um 1,8 km.  Brýrnar eru beggja vegna við Klettsháls.

<>

Heildar magntölur fyrir vegagerðina:

  • –                   Bergskering 27.700 m3
  • –                   Fyllingar 49.900 m3
  • –                   Útjöfnun gamals vegar 14.000 m2
  • –                   Fláafleygar 15.700 m3
  • –                   Ræsalögn 186 m
  • –                   Styrktarlag flutningur og útlögn 10.000 m3
  • –                   Burðarlag flutningur og útlögn 3.700 m3
  • –                   Klæðing 33.960 m2
  • –                   Vegrið 480 m

 Heildar magntölur fyrir brúargerðina á báðar brýr:

  • – Vegrið  188 m
  • – Gröftur 1.600 m3
  • – Stálstaurar, skurður 120 stk.
  • – Mótafletir 2.132 m2
  • – Steypustyrktarjárn 100 tonn
  • – Spennt járnalögn 21 tonn
  • – Steypa 1.180 m3

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. desember 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 4. desember 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. desember 2023.

Ekki verður haldin sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.