Úr fundargerð Bæjarráðs Garðabæjar þann 21.11.2023
Tilboð í byggingarrétt lóða á Hnoðraholti. | ||||||
Lögð voru fram 351 óopnuð umslög með tilboðum í byggingarrétt lóða á Hnoðraholti, sbr. tilkynningu um sölu á byggingarrétti lóða á Hnoðraholti sem birt var á vef Garðabæjar 3. nóvember 2023.
Tilboðin komu frá söluaðilum, þ.e. Torg – fasteignasölu, Garðatorg eignamiðlun, Fasteignamarkaðinum og Fasteignasölunni Miklaborg. Öll tilboð voru móttekin fyrir kl. 12:00, föstudaginn 17. nóvember 2023 Umslögin voru opnuð og tilboðin flokkuð eftir tegundum lóða. Tilboðin verða skráð, flokkuð nánar og tekin til afgreiðslu á fundi bæjarráðs þriðjudaginn 28. nóvember 2023. |
||||||
|
Heimild: Gardabaer.is